Fara í efni

Örnefni og fuglar á eyjum og skerjum á Breiðafirði

25.03.2026
Fréttir

Kynningarfundur um örnefni og fuglalíf á eyjum og skerjum í Breiðafirði verður haldinn fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 14 í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Fundinum verður jafnframt streymt.

Á fundinum verða flutt erindi um örnefni á eyjum Breiðafjarðar og lífríki þeirra, kortlagningu staðkunnugra og fuglalíf á svæðinu, auk þess sem fjallað verður um Örnefnasafn Árnastofnunar og verndun Breiðafjarðar.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.

Tengill á streymi