Fara í efni

Opið hús í Reykhólaskóla

28.05.2026
Fréttir

Við bjóðum íbúum Reykhólahrepps í heimsókn í Reykhólaskóla

Við höldum vorráðstefnu skólans mánudaginn 1. júní kl. 12:30–14:40 þar sem nemendur kynna lokaafurðir úr lotu 4 sem einkennast m.a. af staðartengdri menntun. Nemendur taka á móti gestum, sýna skólann og gróðurhúsið ásamt því að kynna verkefni sín og syngja fyrir gesti.

Allir eru hjartanlega velkomnir og það verður kaffi á könnunni.

Elsta stig verður með kynningar á lokaverkefnum á bókasafninu kl. 13:00. Við biðjum þá sem hyggjast hlýða á kynningarnar að mæta tímanlega. Þetta er eini viðburður dagsins þar sem við óskum eftir að fólk gangi ekki út og inn úr rýminu á meðan kynningar standa yfir.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Reykhólaskóla!