Nýtt fréttabréf Vestfjarðastofu
03.03.2026
Fréttir
Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir febrúarmánuð er komið út. Þrátt fyrir að febrúar sé stysti mánuður ársins á dagatalinu var nóg að gera sem endranær. Í fréttabréfinu er að finna samansafn frétta mánaðarins auk pistla frá Sigríði Ó. Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra og Gylfa Ólafssyni, formanni stjórnar, sem bæði koma inn á málefni sem eru ofarlega á baugi við þróun byggða á Vestfjörðum.
Hægt er að skrá sig á póstlista (Skráning á póstlista hér) og fá bréfið beint í tölvupósti en alltaf má líka nálgast fréttabréfið hér á síðu Vestfjarðastofu.