Fara í efni

Nýr verkefnastjóri FF&F á Reykhólum

17.08.2026
Fréttir
Guðmundur Konráðsson
Guðmundur Konráðsson

Starf verkefnastjóra verkefnisins Brothættra byggða í Reykhólahreppi var auglýst laust til umsóknar í júní síðastliðnum. Alls sóttu 12 um starfið og hefur Guðmundur Konráðsson verið ráðin verkefnastjóri á Reykhólum.

Guðmundur er reynslumikill sérfræðingur með áratuga reynslu á sviði tölvunarfræði, gagnavinnslu og uppbyggingar stafrænnar innviða fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir. Guðmundur hefur meðal annars starfað við gagnagreiningu, gagnavöruhús og þróun tæknilegra lausna með sterka áherslu á skipulag upplýsinga og miðlun þekkingar. Guðmundur hefur reynslu af kennslu, leiðsögn, samfélagsverkefnum og skipulagningu stærri viðburða tengdum mannrækt og sjálfsþroska.

Guðmundur verður með starfsstöð á Reykhólum og hefur störf um miðjan ágúst.

Af vef Vestfjarðastofu