Fara í efni

Móttaka framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026

07.04.2026
Fréttir

Móttaka fram­boðs­lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026 í Reykhólahreppi verður í stjórnsýsluhúsi Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, föstu­daginn 10. apríl, frá kl. 11:00 til kl. 12:00.

Gögn sem þurfa að fylgja framboðum eru tilkynning um framboð þar sem fram kemur heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstafur þeirra. Einnig þarf að tilkynna hverjir tveir eru umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra. Jafnframt skal skila framboðslista með undirrituðu samþykki frambjóðenda sem skal vera á pappír.

Ef engir framboðslistar verða lagðir fram verða óhlutbundnar kosningar. Þeir sem löglega geta skorast undan kjöri, þurfa tilkynna kjörstjórn það skriflega áður en framboðsfrestur rennur út, þann 10. apríl 2026, kl 12:00.

Viðmiðunardagur kjörskrár er miðvikudagurinn 8. apríl, til kl. 12 á hádegi. Skráning lögheimilis kjósanda þann dag segir til um í hvaða sveitarfélagi hann kýs.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu landskjörstjórnar eða hjá yfirkjörstjórn Reykhólahrepps.

 

Yfirkjörstjórn Reykhólahrepps,

Steinunn Ó. Rasmus formaður,

Sandra Rún Björnsdóttir,

Sveinn Ragnarsson.