Matarkista Breiðafjarðar - umræðufundur Króksfjarðarnesi
20.03.2026
Fréttir
Það verður kynning á Matarkistu Breiðafjarðar, umræðufundur í Sólheimum (húsið fyrir neðan Handverksmarkaðinn) í Króksfjarðarnesi 28. mars kl. 14:00.
Hugmyndin er að koma á fót iðnaðareldhúsi þar sem eitt sinn var sláturhús í Króksfjarðarnesi. Við viljum gjarnan heyra frá sveitungum hvort þeir sjái fyrir sér að nota svona eldhús og þá hvað þeir myndu þurfa til að koma sínum viðfangsefnum í framkvæmd.
Það verður sams konar fundur líka á Hólmavík sama dag kl. 11:00 hjá Fine Food Íslandica, sama hús og Galdur brugghús.