Markaðstorg í anddyri íþróttahússins
16.08.2026
Fréttir
Markaðstorgið verður í anddyri Íþróttahússins á Reykhólum í dag! 12-14
Þrír hafa þegar skráð sig með bás
Ég opna húsið aðeins fyrr fyrir þá sem eru með bás svo hægt sé að koma sér fyrir og stilla upp áður en markaðurinn hefst.
Veltibíllinn verður fyrir utan Íþróttahúsið!
Reykhóladagabolirnir verða til sölu þarna og fleira frá Smokehills búðinni. Endilega kíkið við, skoðið hvað er í boði og njótið dagsins með okkur