Fara í efni

Leikskólakennari óskast á Hólabæ

14.07.2023
Fréttir

Leikskólakennari óskast

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 10. ágúst 2023.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði · Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður. Einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall sé þess óskað.

Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2023.

Upplýsingar um starfið, umhverfið og húsnæðismöguleika veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla, skolastjori@reykholar.is.

Fríðindi í starfi,

flutningsstyrkur fyrir starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps.