Fara í efni

Leikfélag Hólmavíkur sýnir í Þjóðleikhúsinu 31. maí

28.05.2025
Fréttir
Nokkrar af persónunum 139, mynd, Leikfélag Hólmavíkur.
Nokkrar af persónunum 139, mynd, Leikfélag Hólmavíkur.

Leikfélag Hólmavíkur sýndi í vetur gamanleikinn 39 þrep, sem er byggður á mynd eftir Alfred Hitchcock.

Sýning Leikfélags Hólmavíkur 39 þrep var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleikhússins. Áhugaleikfélögum sem fá þessa viðurkenningu býðst að sýna leikritin í Þjóðleikhúsinu og verður sýning Leikfélags Hólmavíkur laugardaginn 31. maí, kl. 20:00.

Nælið ykkur í miða hér: https://tix.is/event/19615/39-rep-leikfelag-holmavikur

 

39 þrep eftir Patrick Barlowe er byggt á kvikmynd eftir Alfred Hitchcock og skáldsögu eftir John Buchan. Þetta er spennugamanleikur sem segir frá Richard Hannay sem sogast inn í æsispennandi atburðarás þar sem morð, njósnarar, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur koma við sögu.Í verkinu eru 139 hlutverk en þau eru leikin af fjórum konum.