Fara í efni

Lausaganga katta á Reykhólum

02.06.2025
Fréttir

Kattaeigendur á Reykhólum eru minntir á að lausaganga katta er óheimil frá 1. apríl til 1. september.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti vorið 2020 bókun þess efnis að lausaganga katta væri bönnuð í þéttbýlinu Reykhólum yfir varp- og uppeldistíma fugla frá 1. apríl - 1. september ár hvert.

 

Sveitarstjórn telur brýnt að vernda fuglalíf á Reykhólum sem hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og fuglaskoðara.