Fara í efni

Laus er staða stuðningsfulltrúa í Reykhólaskóla

13.08.2026
Fréttir

Reykhólaskóli er samrekinn grunn-, leik- og tónlistarskóli. Í skólanum eru um 40 nemendur á aldrinum eins árs upp í sextán ára. Okkur vantar stuðningsfulltrúa í vetur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í bekkjarstarfi. Stuðningur við nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu.
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt námskrá og námsáætlunum undir leiðsögn kennara.
  • Sér um gæslu með ákveðnum bekkjum eða/og hópum í útivist.
  • Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum.
  • Aðstoðar nemendur í matsal eftir þörfum.
  • Sjá um létt þrif í skólanum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla og áhugi á starfi með börnum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð íslenskukunnátta

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Vinnutími er frá kl. 8.30 - 15:00 mánudaga – fimmtudaga og 08:30 – 12:30 á föstudögum.

Ráðning er frá 24.ágúst og til loka skólaársins 2027.

Nánari upplýsingar hjá Ástu Sjöfn, skólastjóra á netfangið skolastjori@reykholar.is eða í síma 849-8531