Fara í efni

Kvenna- og kváraverkfall á morgun, 24. október

23.10.2023
Fréttir

Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks blása til heils dags kvennaverkfalls þann 24. október næstkomandi. Konur og kvár sem geta munu þá leggja niður störf.

Búast má við að starfsemi sveitarfélaga skerðist þann dag enda er 74% af starfsfólki sveitarfélaga konur.

Reykhólahreppur tekur undir þau meginmarkmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf, jafnt launuð sem ólaunuð, skuli meta að verðleikum og hvetur stjórnendur stofnanna sinna til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að vinnuframlag kvenna og kvára sé sýnilegt og að sem flest þeirra geti tekið þátt í baráttudeginum að hluta eða í heild þannig að nauðsynlegustu almannaþjónustu sé sinnt og að öryggi og heilsu fólks sé ekki stofnað í hættu.

  • Áréttað er að ekki er um eiginlegt verkfall að ræða þar sem um verkföll gilda sérstök lög og reglur og að ábyrgð á skipulagi og starfsemi einstakra stofnana er á forræði hlutaðeigandi stjórnanda.

Áhaldahús – óskert þjónusta.

Grettislaug – óskert þjónusta.

Hjúrkunarheimilið Barmahlíð- óskert þjónusta

Mötuneyti Reykhólarhepps – skert þjónusta, lokað í Reykhólaskóla, opið í Barmahlíð.

Reykhólaskóli – grunn- og leikskóladeild – lokað

Skrifstofa sveitarfélagsins – skert þjónusta.

Tómstundastarf – lokað.