Fara í efni

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps

22.04.2026
Fréttir

Kjörskrá Reykhólahrepps vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Maríutröð 5a á opnunartíma skrifstofunnar, til 15. maí 2026.

Kjósendur geta kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á heimasíðu Þjóðskrár.

Athygli er vakin á að kosið verður í Reyhólaskóla, kjörfundur verður haldinn í matsal Reykhólaskóla 16. maí.

Ítarlegri upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar er að finna á heimasíðu Landskjörstjórnar, kosning.is