Fara í efni

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst

21.08.2026
Fréttir

Kjörfundur í Reykhólahreppi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður laugardaginn 29. ágúst 2026 í matsal Reykhólaskóla, Skólabraut 1. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Kjósendur eru minntir á að hafa meðferðis persónuskilríki.

Kjósandi á rétt á aðstoð við atkvæðagreiðsluna og þarf ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir því. Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmanni óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningar.

Kjörskrá fyrir Reykhólahrepp vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi til kjördags á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, alla virka daga á opnunartíma. Einnig geta kjósendur séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá.

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna eru á þessum síðum:

Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Upplýsingavefur landskjörstjórnar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Upplýsingar um kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Kjörstjórn Reykhólahrepps,

Sandra Rún Björnsdóttir

Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir

Sveinn Ragnarsson