Fara í efni

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

07.05.2026
Fréttir

Kosningar til sveitarstjórnar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Kjörfundur verður í matsal Reykhólaskóla, Skólabraut 1, Reykhólum.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis.

Kjörskrá hefur verið gefin út af Þjóðskrá Íslands og liggur hún frammi á skrifstofu Reykhólahrepps á opnunartíma, til kjördags.

 

Í kjöri eru 2 framboðslistar, R listi, Raddir okkar allra og S listi, Samfylkingar og óháðra í Reykhólahreppi.

R lista skipa:

  1. Árný Huld Haraldsdóttir Bakka
  2. Embla Dögg Bachmann Reykhólum
  3. Kjartan Þór Ragnarsson Reykhólum
  4. Indíana Svala Ólafsdóttir Reykhólum
  5. Matthías Óli Gústafsson Reykhólum
  6. Aron Viðar Kristjánsson Garpsdal
  7. Agnieszka Anna Marcinkowska Kowalczyk Reykhólum
  8. Björn Samúelsson Höllustöðum
  9. Sigríður Anna Ísleifsdóttir Litlu-Brekku
  10. Karl Kristjánsson Kambi

 

S lista skipa:

  1. Hrefna Jónsdóttir Reykhólum
  2. Þorleifur Jóhann Guðjónsson Reykhólum
  3. Jóhanna Ösp Einarsdóttir Kaplaskjóli
  4. Ólafur Þór Ólafsson Reykhólum
  5. Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir Reykhólum
  6. Phedias Cadavez Rizon Reykhólum
  7. Guðlaug Guðmunda Ingibjörg Magnfríðar Bergsveinsdóttir Gróustöðum
  8. Tindur Ólafur Guðmundsson Litlu-Grund
  9. Helena Þóra Sigurbjörnsdóttir Reykhólum
  10. Andrea Björnsdóttir Skálanesi

 

Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna án skýringa. Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmanni kjósanda er óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningar.

 

Talning atkvæða fer fram í Reykhólaskóla strax og kjörfundi lýkur og gengið hefur verið frá gögnum til talningar.

Allar almennar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar er að finna á kosning.is

 

Reykhólum, 7. maí 2026

kjörstjórn Reykhólahrepps,

Sandra Rún Björnsdóttir formaður

Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir

Sveinn Ragnarsson