Kjartan Þór ráðinn sveitarstjóri
Kjartan Þór Ragnarsson sem gegnt hefur starfi sveitarstjóra frá því núverandi sveitarstjórn tók við, var valinn úr hópi 9 umsækjenda og samþykkt á síðasta sveitarstjórnarfundi að ráða hann til starfa áfram.
Alls sóttu 11 um stöðu sveitarstjóra en 2 drógu umsóknirnar til baka.
Nöfn þeirra 9 sem sóttu um eru:
Aron Bjarmi Gerðarson,
Árdísi Rut Einarsdóttir,
Einar Björn Einarsson,
Einar Kristján Jónsson,
Hilmar Vilberg Gylfason,
Kjartan Þór Ragnarsson,
Maríanna H. Helgadóttir,
Sigríður Kristín Jónasdóttir,
Sævar Freyr Sigurðsson.
Kjartan Þór hefur starfað hér síðan í ágúst 2023, þegar hann var ráðinn verkefnisstjóri hjá Reykhólahreppi og til gamans má segja frá því að þá var hann valinn úr hópi 11 umsækjenda.
Kjartani er óskað velfarnaðar í störfum fyrir okkur öll.