Fara í efni

Kindur með ARR arfgerð í Dölunum

26.01.2024
Fréttir
Ær í Vífilsdal, mynd af rml.is
Ær í Vífilsdal, mynd af rml.is

Staðfest hefur verið að ARR genasamsætan, sem hefur verndandi áhrif gegn riðuveiki, hefur nú fundist í gripum sem óskyldir eru Þerununesfénu.

Á bænum Vífilsdal í Hörðudal í Dalasýslu, greindist ARR í hrútlambi í haust sem á ekki foreldra sem vitað var að bæru ARR. Í framhaldinu var greint sýni úr móður hrútsins og reyndist hún bera ARR. Nú er búið að tvígreina bæði hrútinn og móður hans og því ljóst að fundin er ný ættarlína sem ber þennan verndandi breytileika.

Lambhrúturinn heitir Vörður 23-459, faðir hans er Tónn 18-855 frá Melum. Móðir hrútsins, ær nr. 16-189, er dóttir kaupahrúts, Bagga 12-441 frá Heydalsá og undan á af heimakyni.

Þetta eru stórkostleg tíðindi fyrir ræktunarstarfið. Nú eru rétt um tvö ár síðan ARR fannst í fyrsta skipti í íslenskri kind, en það var á bænum Þernunesi við Reyðarfjörð. Að loks bætist við önnur upphafshjörð gensins mun auðvelda verulega verkefnið framundan sem er að innleiða verndandi arfgerðir í stofninn í heild.

Á bænum Vifilsdal er rekið myndar fjárbú, þar eru um 500 kindur á vetrarfóðrum og afurðir góðar. Næsta skref verður að kortleggja þessa hjörð nánar og freista þess að finna fleiri erfðafræðilega gullmola.

Af síðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.