Fara í efni

Íþróttavika Evrópu | 23.–30. september 2026 – Dagskrá

26.09.2026
Fréttir

Dagana 23. til 30. september fer Íþróttavika Evrópu fram í rúmlega 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að hvetja fólk til aukinnar hreyfingar og vekja athygli á mikilvægi íþrótta í daglegu lífi. Viðburðurinn er opinn öllum, án tillits til aldurs, getu eða uppruna. Í ár er dagskrá glæsilegt samstarfsverkefni Reykhólahrepps, Dalabyggðar, UDN (Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga) og Ungmennafélagsins Aftureldingar. Íþróttavika Evrópu er styrkt af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins. Nánari upplýsingar má finna undir: #BeActive

Viðburðir í Dalabyggð og Reykhólahreppi

Sundnámskeið 1.-4. bekk: Guðmundur Brynjar Júlíusson kemur frá Akranesi og kennir yngstu skólabörnunum okkar sundtökin! Guðmundur hefur áratuga reynslu af sundi.

Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna: Fyrrnefndur Guðmundur verður með Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna! Það er alltaf pláss fyrir bætingu þegar kemur að sundi!

Námskeið á skólatíma þann 23. september: Borðtennissamband íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Glímufélag Dalamanna ásamt Bergþóri Olivert Thorstensen, Frisbígolf-snillingi verða með námskeið í skólunum okkar Auðarskóla og Reykhólaskóla.

Mætum í ræktina!: Mætum í ræktina er tími í líkamsrækt þar sem einstaklingar geta komið og fengið kennslu á helstu tækin í ræktinni, talað við þjálfara og fengið ráð um það hvernig er best að koma sér af stað!

Viðburðir í Reykhólahreppi

Sjósund: Það verður tækifæri fyrir þá allra hörðustu að skella sér í sjósund með Kolfinnu Ýr Ingólfsdóttur! Sjósund er frábær leið til að styrkja ónæmiskerfið, minnka streitu og hlaða líkamann nýrri orku. Mæting er á ströndinni við Seljanes.

Vaðalfjöll – Fjallganga: Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir verður með umsjón yfir fjallgöngunni uppá Vaðalfjöll þann 23. september. lagt er upp með að hittast við afleggjarann upp að vaðalfjöllum klukkan 16:30. Þá er sameinast í bíla, keyrt áleiðis og síðan gengið.

Qigong námskeið: Qigong með Þórdísi Filipsdóttur! Qigong er aldagömul kínversk heilsurækt sem sameinar hægar hreyfingar, djúpa öndun og einbeitingu til þess að efla flæði lífsorkunnar í líkamanum. https://holisticbythordis.com

Flotnámskeið: Flotnámskeið er slakandi vatnsmeðferð þar sem notast er við sérstakan flotbúnað í laug til að losa um vöðvaspennu og draga úr streitu. Í nafni flothettu bjóðum við þig velkominn í vatnið til að dvelja vel studd í þyngdarleysi, njóta nudd og hreyfingar á meðan þú hefur tækifæri til að hlusta dýra á líkama þinn og sál. https://flothetta.is

Flotnámskeið fyrir börn: Leikum og lærum saman í vatninu! Við opnum samverustundina með nokkrum leikjum og æfingum og höfum gaman. Eftir leikinn prófa börnin að fljóta með sérstakan búnað, sem veitir þeim öryggi, rósemi og dásamlega slökun í heitu vatni.

Jógatími fyrir 5.-10. bekk: Caryna Bolivar býður upp á Hatha jógatíma fyrir unglingana. Hún er þaulvanur Yoga-, Zumba-, hóptíma- og einkaþjálfari! https://www.carynabolivar.com/yoga

Zumbatími fyrir konur: Við bjóðum ykkur á zumbanámskeið með Carynu Bolivar! Zumba er hressandi brennsluæfing þar sem einföldum danssporum er blandað saman við fjöruga rómanska tónlist. Þetta er frábær skemmtun þar sem allur líkaminn fær að hreyfa sig á skemmtilegan hátt! https://www.carynabolivar.com/zumba

Hreyfing 60+ fyrir alla: Á þessu námskeiði kynnir Caryna Bolivar mismunandi íþróttagreinar sem veita nýja orku og lífsfyllingu með einföldum æfingum. Hvort sem um ræðir Zumba Gold eða einfalt jóga – láttu innblásturinn hrífa þig með og njóttu samverunnar! https://www.carynabolivar.com/60

Stólaleikfimi fyrir íbúa: Caryna Bolivar mætir einnig til heimilisfólksins í Barmahlíð og færir þeim fjölbreytni í daglegt líf! Með einföldum og skemmtilegum æfingum er stuðlað að vellíðan og lífsgleði fyrir alla.

Viðburðir í Dalabyggð:

Flotnámskeið: Guðríður S. Brynjarsdóttir (Gauja) verður með flotnámskeið í sundlauginni í Búðardal. Flotnámskeið er slakandi vatnsmeðferð þar sem notast er við sérstakan flotbúnað í laug til að losa um vöðvaspennu og draga úr streitu. Hámark 15 manns geta skráð sig. Skráðu þig með þvi að senda SMS-ið „fullt nafn – FLOT“ í síma 773-3357.

Fjallganga: Gengið verður frá Laugum í Sælingsdal inn í Ránargil, Hittumst við aðalinnganginn að Dalahótel

Vinyasa jóga: Carla verður með jógatíma í Dalabúð. Vinyasa jóga eða flæðisjóga virkar þannig að í stað þess að halda jógastöðum lengi þá „flæðir“ iðkandinn jafnt og þétt frá einni stöðu yfir í aðra.

Sundlaugapartý: Sundlaugapartý í nýju fallegu sundlauginni okkar í Búðardal! Þar verðu DJ og mögulega diskóljós!