Inflúensubólusetningar 2026
26.10.2026
Fréttir
Inflúensubóluefni veturinn 2026-2027 verða:
- Influvac: fyrir börn 6-23 mánaða og fullorðna með áhættuþætti.
- Fluenz (nefúði): fyrir öll börn 2ja-4 ára og 5-17 ára með áhættuþætti.
Forgangshópar verða bólusettir eftirfarandi daga – þarf ekki að bóka bara mæta 😊
Í Búðardal:
Þriðjudaginn 27. október kl. 9:30-14:30 og föstudaginn 30. október kl. 9:30-11:30
Á Reykhólum:
Miðvikudaginn 28. október kl. 11:30-14:00
Þau sem ekki geta mætt á þessum dögum geta hafa samband í síma 432 1450 og við finnum tíma.
Ath. börnum verður gefinn tími í bólusetingu á öðrum degi eftir samkomulagi.
Í forgangshópum eru:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri (Influvac).
- Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu (bóluefni í samræmi við aldur).
- Öll börn sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Meta þarf frábendingar Fluenz á einstaklingsgrundvelli og eftir atvikum má nota Influvac þess í stað.
- Allir fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (Influvac).
- Barnshafandi (eingöngu Influvac jafnvel þótt hafi ekki náð 18 ára aldri).
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan (Influvac).
- Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu (Influvac).
Ofangreindir áhættuhópar fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu. Um komugjöld hjá heilsugæslu/heimilislækni vegna komu eingöngu vegna inflúensubólusetningar gildir reglugerð 1582/2024.
Starfsfólk HVE Búðardal / Reykhólum