Fara í efni

Inflúensubólusetning, augnlæknir og kvensjúkdómalæknir á heilsugæslunni á næstunni

15.10.2025
Fréttir

Inflúensubólusetningar fyrir áhættuhópa

eru að hefjast á Heilsugæslustöðinni í Búðardal og á Reykhólum.

Gert er ráð fyrir að bólusetja á Reykhólum miðvikudaginn 22. október n.k.

Tímapantanir eru í síma 432 1450

Í forgangshópi eru:

  • einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Börn fædd 2020 eða síðar sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki,

offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023.

 

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir

verður til viðtals á Heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtud. 23. okt.

Tímapantanir eru í síma 432 1450

Mánudaga - fimmtudaga kl. 09–15

Föstudaga kl. 09-12

 

Helga Medek kvensjúkdómalæknir 

verður til viðtals á Heilsugæslustöðinni í Búðardal miðvikud. 5. nóv. og fimmtud. 6. nóv. n.k.

Tímapantanir eru í síma 432 1450

Mánudaga - fimmtudaga kl. 09–15

Föstudaga kl. 09-12