Íbúi ársins í Reykhólahreppi
Dísa Sverrisdóttir var á Reykhóladögum valin Íbúi ársins í Reykhólahreppi 2026.
Dísa er einstaklega hugmyndarík, dugleg og drífandi manneskja sem leggur mikið til samfélagsins okkar. Hún er sannkallaður frumkvöðull og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir skemmtilegar og frumlegar hugmyndir sínar. Þar ber auðvitað hæst hinn einstaki símaklefi á Reykhólum, þar sem Dísa hefur skapað litla sjálfsafgreiðslubúð með vörum sínum. Hugmyndin hefur vakið mikla athygli - meira að segja langt út fyrir landsteinana – og er frábært dæmi um þá sköpunargleði og frumkvöðlahugsun sem einkennir Dísu.
En framlag Dísu til samfélagsins er svo sannarlega ekki bundið við símaklefann. Hún er jákvæð, skapandi og óhrædd við að hrinda hugmyndum í framkvæmd og gerir samfélagið okkar skemmtilegra og litríkara með því sem hún tekur sér fyrir hendur.
Við erum ótrúlega heppin að hafa Dísu í samfélaginu okkar og óskum henni innilega til hamingju með nafnbótina Íbúi ársins 2026! Innilega til hamingju, Dísa - vel að þessu komin!