Fara í efni

Íbúafundur FF&F vel sóttur

21.10.2026
Fréttir
Verkefnisstjórn FF&F Fv. Guðmundur Konráðsson, Kristján Þ. Halldórsson sem tók meðfylgjandi myndir, Aðalsteinn Óskarsson, Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Heba Guðmundsdóttir, Helga Harðardóttir og Hlynur Einarsson
Verkefnisstjórn FF&F Fv. Guðmundur Konráðsson, Kristján Þ. Halldórsson sem tók meðfylgjandi myndir, Aðalsteinn Óskarsson, Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Heba Guðmundsdóttir, Helga Harðardóttir og Hlynur Einarsson

Íbúafundur var haldinn í byggðaþróunarverkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða fimmtudaginn 15. október sl. Þetta er annað árið í röð sem slíkur fundur er haldinn undir merkjum verkefnisins og ánægjulegt var sjá að íbúar í Reykhólahreppi fjölmenntu á fundinn og tóku virkan þátt.

Guðmundur Konráðsson verkefnisstjóri.

Hluti verkefnisstjórnar heimsótti styrkþega heim fyrr um daginn. Fyrst var haldið í Handverksmarkaðinn Össu í Króksfjarðarnesi en þar tók Sveinn Ragnarsson á móti gestum og sagði m.a. frá styrktu verkefni sem fólst m.a. í endurbótum og búnaðarkaupum fyrir eldhúsið í markaðnum. Því næst var haldið í Djúpadal þar sem þau Leifur Samúelsson og Guðrún Samúelsdóttir sem stunda ferðaþjónustu sögðu frá sínum verkefnum í stækkun gistirýmis og bættri aðstöðu.

Á Reykhólum bættust svo fleiri fulltrúar stjórnar í hópinn og þar var Báta- og hlunnindasýningin skoðuð með leiðsögn Rebekku Eiríksdóttur.

Að lokum var haldið í Búðina þar sem Lovísa Ósk Jónsdóttir tók á móti verkefnisstjórn og sagði frá og sýndi hópnum ljósmyndasýninguna Augnablik í Reykhólahreppi.

 

Starfsfólk Byggðastofnunar þakkar íbúum og samstarfsaðilum kærlega fyrir fróðlegan og árangursríkan dag í Reykhólahreppi.

Nánar er sagt frá þessu á vef Byggðastofnunar