Fara í efni

Hulda Sveinbjörg ráðin hjúkrunarforstjóri Barmahlíðar

27.07.2026
Fréttir
Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir
Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir

Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem hjúkrunarforstjóri Barmahlíðar og mun hefja störf við hjúkrunar- og dvalarheimilið 1. september næstkomandi.

Hulda er fædd 1961 og uppalin á Dalvík en hefur búið í Reykjavík frá 1986. Hún er gift og á 5 bōrn og 8 barnabörn

Hulda er menntuð hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í hjúkrunarstjórnun. Hún er einnig með menntun í uppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda frá sama skóla. Hún hefur sótt fjölda námskeiða og ráðstefna á sviði hjúkrunar og heilbrigðisþjónustu bæði hérlendis og erlendis á starfsferli sínum.

Hulda er með fjölbreytta áratuga reynslu af sviði hjúkrunarfræði og starfaði m.a. á gjörgæsludeild og vöknun Landspítalans við Hringbraut í tvo áratugi. Einnig var Hulda hjúkrunarstjóri við heimili aldraða, Seljahlíð í Reykjavík í tæpan áratug.

Stjórn Barmahlíðar og sveitarstjórn Reykhólahrepps bera miklar væntingar til Huldu Sveinbjargar sem hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar og bjóða hana hjartanlega velkomna til starfa.