Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit opnaður aftur 1. apríl
Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit opnar aftur um næstu mánaðamót eftir þriggja ára lokun. Á síðasta ári keypti Sigurður Friðriksson staðinn og hefur verið unnið að því að undirbúa opnunina.
Opið verður frá kl 7 að morgni og gestir geta fengið keyptan morgunmat og opið verður fram á kvöld alla daga. Sigurður sagði í samtali við Bæjarins besta að hann áformaði að hafa opið yfir sumarið eins og áður var en nú lengur fram á haustið og fram til áramóta.
Þetta verður mikil breyting fyrir vaxandi umferð ferðamanna um Vestfjarðaveg þar sem staðurinn hefur verið lokaður síðustu þrjú ár. Nú verður hægt að koma þar við og fá mat og veitingar allan daginn auk þess að seld er gisting.
Sigurður sagði að til hátíðabrigða vegna opnunarinnar verði harmónikkuleikari á staðnum fyrstu kvöldin frá um kl 19 til 22 til skemmtunar fyrir gesti.