Hleðslustöð tengd í Króksfjarðarnesi
02.07.2026
Fréttir
Í gær var tengd í Króksfjarðarnesi hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Orkubú Vestfjarða setti upp þessa stöð. Þetta er 4x250kW hraðhleðslustöð. Hún annar þó ekki fjórum bílum í einu á fullum afköstum, en margir bílar taka ekki við svo mikilli hleðslu.
Þá eru alls 4 stöðvar í Reykhólahreppi, í Djúpadal, á Reykhólum, í Bjarkalundi og nú síðast í Króksfjarðarnesi.
