Grund Verk - nýtt fyrirtæki í Reykhólahreppi
14.09.2026
Fréttir
Ketill Ingi Guðmundsson og Tindur Ólafur Guðmundsson, mynd af fb.
Bræðurnir á Litlu - Grund, Ketill Ingi og Tindur Ólafur Guðmundssynir hafa stofnað nýtt smíðafyrirtæki, Grund Verk. Þeir bræður hafa yfirgripsmikla verkþekkingu, Tindur er bílasmiður og Ketill er húsasmiður.
Hér er nafnspjald fyrirtækisins, ef einhver þarf að fá upplýsingar um smíðaþjónustu þeirra bræðra.
