Gróskudagur Skógræktarfélagsins Bjarkar
02.06.2025
Fréttir

Laugardaginn 7. júní, milli kl. 13 og 16 ætlar skógræktarfélagið Björk að vera með gróskudag inn á Barmahlíð.
Markmiðið er að grisja skóginn okkar og undirbúa gönguleið að ofanverðu, einnig að hafa gaman saman. Við erum með eitthvað af tækjum og tólum en frábært ef einhver á klippur eða sagir að koma með.
- Boðið verður upp á tálgun úr ferskum viði fyrir börn frá 5 ára aldri og fullorðna. Lærðu örugg hnífsbrögð og komdu að tálga í náttúrurunni. Umsjón Þórdís Halla smíðakennari.
- Fjársjóðsleit, skoðaðu vísbendingarnar og kannski finnur þú falinn fjársjóð.
- Grillaðar pylsur að hætti skógarbúa.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og njóta.
Kveðja
stjórn skógræktarfélagsins
Ásta, Bettina og Þórdís