Fara í efni

Gróskudagur á Barmahlíðinni

15.06.2026
Fréttir

Sunnudaginn 21. júní, kl. 13 ætlar skógræktarfélagið Björk að vera með gróskudag inn á Barmahlíð. Markmiðið er að grisja skóginn okkar, klára gönguleið að ofanverðu og finna stað undir áningapallana okkar, einnig að hafa gaman saman. Við fengum styrk frá brothættum byggðum fyrir áningarpöllum og skilti við bílastæðið. Við erum með eitthvað af tækjum og tólum en frábært ef einhver á klippur eða sagir að koma með.

· Boðið verður upp á tálgun úr ferskum viði fyrir börn frá 5 ára aldri og fullorðna. Lærðu örugg hnífsbrögð og komdu að tálga í náttúrurunni. Umsjón Þórdís Halla smíðakennari.

· Fjársjóðsleit, skoðaðu vísbendingarnar og kannski finnur þú falinn fjársjóð.

· Grillaðar pylsur að hætti skógarbúa.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og njóta.

Kveðja,

Stjórn skógræktarfélagsins