Fara í efni

Fyrirhuguð lagning ljósleiðara í þorpið á Reykhólum

19.07.2023
Fréttir

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara á Reykhólum, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í þéttbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll heimili á Reykhólum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Auglýst er eftir:

A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu á Reykhólum á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.

B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.

C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Reykhólahreppi sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til skirfstofu Reykhólahrepps á netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir kl. 12:00 þann 10. ágúst 2023. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.

Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið: skrifstofa@reykholar.is

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Reykhólahrepp né þá sem sýna verkefninu áhuga.