Fara í efni

Fundur með innviðaráðherra á Ísafirði 19. ágúst

14.08.2025
Fréttir

Þriðjudaginn 19. ágúst verður haldinn opinn íbúafundur með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í Edinborgarhúsinu á Ísafirði

Tilgangur fundarins er að eiga samráð og kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Þá er stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.

Boðað er til til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins.

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað. Allir fundir hefjast kl. 16:30

19. ágúst

Ísafjörður (Edinborgarhúsið)

Skráning

16:30-18:00