Fara í efni

Fundur með foreldrum vegna yfirstandandi framkvæmda í Reykhólaskóla

28.10.2026
Fréttir

Foreldrum nemenda Reykhólaskóla er boðið til upplýsingafundar fimmtudaginn 29. október kl. 17:00 í matsal Reykhólaskóla með sveitarstjóra og verktökum Múrtækni ehf. þar sem farið verður yfir þær framkvæmdir sem nú standa yfir á kennsluálmu skólans.

Fjallað verður um ástæður framkvæmdanna, tímaáætlun og umfang verks og áhrif á skólastarf nú á haustönn. Aðrir íbúar Reykhólahrepps eru einnig velkomnir á fundinn.