Fara í efni

Fréttir af lagningu ljósleiðara á Reykhólum

13.05.2026
Fréttir
Hörður Úlfarsson annar eiganda Gröfutækni ehf. og Hrafnkell Guðnason sviðsstjóri hjá Reykhólahreppi handsala samvinnu síðastliðinn föstudag.
Hörður Úlfarsson annar eiganda Gröfutækni ehf. og Hrafnkell Guðnason sviðsstjóri hjá Reykhólahreppi handsala samvinnu síðastliðinn föstudag.

Samkomulag hefur náðst við Gröfutækni ehf. um lagningu ljósleiðara í þéttbýlið á Reykhólum í sumar. Áætlað er að framkvæmdir muni hefjast í lok júlí eða fyrri hluta ágústmánaðar.

Gröfutækni ehf. var stofnað árið 1994 en sögu fyrirtækisins má rekja allt aftur til ársins 1970 þegar eigendur Gröfutækni tóku við verktakafyrirtæki föður síns.

Hjá fyrirtækinu vinna 14-16 starfsmenn og innan þeirra raða er mikil reynsla af allri jarðvinnu, þar með talið gatnagerð og lagnavinnu hvort sem um er að ræða vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu eða lagningu ljósleiðara.

Það sér því fyrir endan á ferlinu sem hófst með átakinu Ísland ljóstengt sem var sett í gang árið 2016 og lauk árið 2021. Þetta átak snérist um að ljósleiðaratengja dreyfbýlið á Íslandi, en þegar því átaki var lokið stóð eftir það vandamál að aðilar á markaði höfðu ekki áhuga á að leggja ljósleiðara í þéttbýliskjarnana í dreyfbýli þar sem markaðslegar forsendur þóttu ekki fyrir hendi.

Um mitt ár 2024 var tilkynnt um úthlutun úr Fjarskiptasjóði til þeirra þéttbýliskjarna þar sem markaðsbrestur var fyrir hendi. Að undangengnum aulgýsingum eftir aðilum til að leggja ljósleiðara í þéttbýlið á markaðslegum forsendum, sótti Reykhólahreppur um til Fjarskiptasjóðs og fékk úthlutað til verkefnis á Reykhólum. Styrkurinn dugar þó ekki nema fyrir litlum hluta kostnaðar svo Reykhólahreppur mun leggja til fjármagn ásamt því að íbúar munu greiða tengigjöld. Kerfið verður í eigu Fjarskiptafélags Reykhólahrepps sem mun reka kerfið ásamt því ljósleiðarkerfi sem fyrir er í dreifbýli sveitarfélagsins.

Hönnun kerfisins og innkaupum á aðföngum er að ljúka svo nú sér loksins fyrir endan á því að íbúar á Reykhólum þurfi að láta sér duga hægar og höktandi nettengingar.