Framtíðarsýn - Reykhólahreppur árið 2030?
22.11.2025
Fréttir
Reykhólahreppur árið 2030?
Súpufundur með íbúum í Bakka-búðinni, Reykhólum, fimmtudaginn 27. nóvember 2025.
Reykhólahreppur boðar til samtalsfundar með íbúum sveitarfélagsins til að ræða stöðu og framtíð sveitarfélagsins. Meðal þeirra spurninga sem verður velt upp eru:
- Hvernig mun reksturinn þróast næstu árin?
- Hvernig sjáum við hlutverk sveitarfélagsins?
- Eru einhverjar flækjur í starfsumhverfi sveitarfélagsins?
- Hvernig er umhverfi sveitarfélaga að breytast?
- Hvaða svigrúm er til framkvæmda og fjárfestinga?
- Á að sameinast og þá hvert, eða á bara að setja svoleiðis pælingar aftur upp á hillu og er það hægt?
Húsið opnað kl. 19:00 og fundur hefst kl. 19:30. Boðið verður upp á súpu, heitt verður á könnunni og barinn opinn að loknum fundi.
Ólafur Þór Ólafsson,
sveitarstjóri Reykhólahrepps