Fara í efni

Framkvæmdum við Kúatjörn lokið

25.07.2026
Fréttir
Starfsmenn Grjótgásar ehf. við Kúatjörn að loknu verki. T.h. Guðjón Sigurliði Sigurðsson og t.v. Atli Hjörvar Einarsson einn eigenda Grjótgásar. Júlíus Arnar Birgisson annar eigandi var verkstjóri á svæðinu við frágang og verklok.
Starfsmenn Grjótgásar ehf. við Kúatjörn að loknu verki. T.h. Guðjón Sigurliði Sigurðsson og t.v. Atli Hjörvar Einarsson einn eigenda Grjótgásar. Júlíus Arnar Birgisson annar eigandi var verkstjóri á svæðinu við frágang og verklok.

Starfsmenn Grjótgásar ehf. komu nú í júlí að Reykhólum til að ljúka verkinu við Kúatjörn sem þeir unnu að sl. sumar og luku miðvikudaginn 22. júlí, við frágang og framkvæmdir við Kúatjörn (Kúalaug). Gengið var mótun svæðisins og stígagerð með tveimur brúm, auk gróðursetningar plantna og þökulagningar. Allur frágangur og framkvæmd verksins er til fyrirmyndar og áningarstaðurinn orðin mikil prýði fyrir þorpið á Reykhólum og eiga starfsmenn Grjótgásar hrós skilið fyrir störf sín.

Verkefni áningastaðar við Kúatjörn og undirbúningur þess hafa verið fjármögnuð með styrkveitingu frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða með styrkjum veittum 2023 og 2024. Markmið verkefnisins var að byggja upp áningastað ferðamanna á Reykhólum með því að bæta aðstöðu við Kúatjörn í Reykhólahreppi og reisa þar trépall, trébryggju, leggja bílastæði, endurgera hleðslur og leggja hringstíg um tjörnina.

Starfsmenn Grjótgásar ehf. hófu verkið sumarið 2025 og unnu að því fram á haustið. Brynjólfur Smárason (Bolli) frá Verklokum ehf. á Reykhólum starfaði einnig við ýmsa jarðvegsvinnu og efnisflutning á svæðinu í samstarfi við Grjótgás. Sveitarfélagið fagnar þessum áfanga við Kúatjörn og þakkar öllum þeim sem komu að framkvæmd verkefnisins og vonar að sem flestir íbúar og gestkomandi geti vel við notið.