Fara í efni

Formleg sveitarstjóraskipti í dag

17.06.2025
Fréttir
Ólafur Þór tekur við lyklavöldum af Ingibjörgu Birnu
Ólafur Þór tekur við lyklavöldum af Ingibjörgu Birnu

Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní 2025, tók Ólafur Þór Ólafsson formlega við embætti sveitarstjóra Reykhólahrepps. Lyklaskiptin fóru fram á skrifstofu sveitarfélagsins, þar sem fráfarandi sveitarstjóri, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, afhenti Ólafi Þór lyklavöldin með hlýjum kveðjum og góðum óskum um velfarnað í nýju hlutverki.

Til að tryggja samfellu í störfum sveitarfélagsins störfuðu þau Ingibjörg og Ólafur saman í heila viku fyrir formleg embættisskipti. Sú yfirfærsla gekk afar vel og skapaðist jákvæð og fagleg stemning í húsinu þar sem Ólafur fékk hlýjar móttökur, bæði frá fráfarandi sveitarstjóra og starfsfólki sveitarfélagsins.

Ólafur Þór kemur til starfa með víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og lýsir yfir þakklæti fyrir traustið sem honum hefur verið sýnt. Hann hlakkar til að vinna með íbúum Reykhólahrepps, starfsfólki og kjörnum fulltrúum að áframhaldandi uppbyggingu og velferð sveitarfélagsins.

Starfsfólk á skrifstofu Reykhólahrepps, ásamt fráfarandi og nýjum sveitarstjóra, fv. Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, Lovísa Ósk Jónsdóttir, Hrafnkell Guðnason, Embla Dögg Bachmann og Ólafur Þór Ólafsson.