Fara í efni

Fjölmennur íbúafundur um vindorkugarð í Garpsdal

05.11.2026
Fréttir

Íbúar Reykhólahrepps fjölmenntu á íbúafund sem sveitarstjórn boðaði til í matsal Reykhólaskóla miðvikudaginn 4. nóvember. Þar var fjallað um áform um vindorkugarð í Garpsdal.

Kjartan Þór Ragnarsson sveitarstjóri, opnaði fundinn og annaðist fundarstjórn. Ríkarður Örn Ragnarsson, verkefnastjóri hjá EM Orku, fór yfir stöðu vindorkuverkefnisins og svaraði spurningum fundargesta.

Rikarðurn Örn Ragnarsson.

Fjöldi spurninga var borinn upp og spunnust líflegar umræður í kringum þær. Allar athugasemdir og spurningar sem fram komu voru skráðar og munu nýtast í áframhaldandi vinnu sveitarstjórnar við málið.

Fundurinn var haldinn í kjölfar þess að verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar lagði til í október að vindorkugarður í Garpsdal yrði settur í nýtingarflokk, einn þeirra vindorkukosta sem metnir voru. Með breytingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 í sumar er aukin áhersla lögð á viðhorf sveitarfélagsins og nærsamfélagsins við mat á virkjunarhugmyndum í vindorku. Afstaða íbúa skiptir því miklu máli í framhaldinu.

Sveitarstjórn þakkar íbúum fyrir góða mætingu og virka þátttöku í umræðunum.