Fara í efni

Ferjuleiðir ehf. taka við rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs

02.06.2025
Fréttir
mynd, visir.is
mynd, visir.is

Frá og með deginum í dag taka Ferjuleiðir ehf. formlega við rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, af Sæferðum í Stykkishólmi. Fyrsta ferð Baldurs undir nýjum rekstraraðila verður farin kl. 11:00 í dag, mánudaginn 2. júní.

Í fréttatilkynningu segir að áhöfn skipsins sé að mestu leiti sú sama og tryggir það samfellu í þeirri þjónustu sem farþegar Baldurs hafa notið um árabil. Ferjuleiðir munu kappkosta að bjóða upp á góða þjónustu, líkt og fyrrum rekstraraðilar hafa gert síðustu áratugi. Áfram verður hægt að nýta einingakort Sæferða sem og kaupa ný hjá Ferjuleiðum, sem er mikilvægur liður í því að tryggja hnökralausa yfirfærslu fyrir viðskiptavini Baldurs.

„Þetta er gleðidagur fyrir okkur hjá Ferjuleiðum og ánægjulegt að taka formlega við rekstrinum á Sjómannadeginum sjálfum.“ segir Gísli Jóhann Eysteinsson, framkvæmdastjóri Ferjuleiða. „Síðastliðnir mánuðir hafa farið í mikla undirbúningsvinnnu og höfum við kappkostað að búa vel um hnútana svo að viðskiptavinir sem og farþegar muni upplifa áfram þá góðu þjónustu nú sem fyrr”.