Fara í efni

Ársreikningur Reykhólahrepps 2022 birtur

12.06.2023
Fréttir

Ársreikningur Reykhólahrepps fyrir árið 2022 er nú aðgengilegur hér á síðunni. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 740,5 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 599,9 millj. kr.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%, sem er lögbundið hámark þess. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki nam 0,5% sem er lögbundið hámark þess, í B-flokki nam álagningarhlutfall 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess með álagi.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 82,3 millj. kr., en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 61,9 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. 

Heildareignir sveitarfélagsins námu 838,6 millj. kr. og heildarskuldir 232,7 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 605,9 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta nam 490,9 millj. kr.