Fara í efni

Embla Dögg framkvæmdastjóri Reykhóladaga 2026

09.04.2026
Fréttir
Ólafur Þór Ólafsson og Embla Dögg Bachmann
Ólafur Þór Ólafsson og Embla Dögg Bachmann

Gengið hefur verið frá því að Embla Dögg Bachmann verði framkvæmdastjóri Reykhóladaga 2026. Hún og Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, skrifuðu undir samning þess efnis miðvikudaginn 8. apríl s.l.

 

Reykhóladagar í ár munu fara fram dagana 12.-16. ágúst og munu hefjast með þeirri stórkostlegu sýningu náttúrunar sem almyrkvi sólar er. Undirbúningur dagskrár er þegar hafinn og margt skemmtilegt verður í gangi sem verður kynnt betur þegar nær dregur.

 

Embla Dögg starfar hjá Vestfjarðastofu sem verkefnastjóri verkefnisins Fjársjóður fjalla og fjarða í Reykhólahreppi. Hún hefur haldið utan um framkvæmd Reykhóladaga síðustu tvö ár við góðan orðstý og sér nú um hátíðina í þriðja sinn samhliða störfum sínum hjá Vestfjarðastofu.