Fara í efni

Elísabet með alþjóðleg þjálfararéttindi í bogfimi

17.06.2025
Fréttir
Tim Swane og Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, mynd Bogfimisamband Íslands
Tim Swane og Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, mynd Bogfimisamband Íslands

Elísabet er fyrst til þess að ná alþjóðlegum þjálfararéttindum úr UMF Aftureldingu á Reykhólum og er ein af 29 á landinu sem er með þau réttindi.

 Námskeiðið var haldið af Bogfimisambandi Íslands í samstarfi við World Archery (heimssambandið), með stuðningi frá Olympic Solidarity (Ólympíusamhjálpinni) og ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands)

Þjálfarakennarinn var Tim Swane frá Bretlandi, sem er aðal þjálfarakennari World Archery (heimssambandsins).

Mögulegt er að sjá nánar um námskeiðið hér í frétt frá Bogfimisambandi Íslands