Fara í efni

Dagskrá Reykhóladaga, laugardag 19. ágúst

18.08.2023
Fréttir
Tveir franskir
Tveir franskir

Laugardagur:

11:00 Búningahlaup

Vinnuskóli Reykhólahrepps heldur búningahlaup fyrir allan aldur. Hlaupið er hringur á Reykhólum þar sem þátttakendur þurfa að taka þátt í allskonar þrautum sem gætu orðið subbulegar á köflum. Frítt í sund fyrir hlaupara að hlaupi loknu.

 

12:00 Boðið heim í súpu

Boðið verður upp á kjötsúpu hjá Ástu Sjöfn á Litlu-Grund og Dísa Sverris verður með  brauðsúpu og kakósúpu í skólanum.

 

14:00 Dráttarvélaskrúðganga

Hin árlega stórglæsilega dráttarvéla skrúðganga leggur af stað frá Grund og hægt verður að fylgjast með akstrinum í gegnum þorpið. Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni á bílunum sínum frá klukkan 13:30-14:00 til að vélarnar eigi greiða leið í gegnum þorpið.

 

14:30 Dráttavélarfimi

Heimsmeistaramótið í dráttarvélafimi. 25 ára aldurstakmark. Skráning á staðnum.

14:30 Hestafimi. Fyrir þá sem eru ekki með aldur til að vera með í dráttarvélafiminni getur fólk brugðið sér á bak á einu hestafli og leyst verkefni.

 

16:30-17:30 Þaraboltinn. Íslandsmeistaramótið í Þarabolta verður að sjálfsögðu á sínum stað. Eins og áður þá eru leikreglur þannig að 14 ára og eldri mega taka þátt. 5 - 6 í hverju liði, 5 spila inni á vellinum í einu frá hvoru liði. Bannað er að vera í skóm í keppninni. Subbulegur en skemmtilegur fótbolti.

Skráningarfrestur til klukkan 20:00 fimmtiudaginn 17. Ágúst. Lágmark 2 lið til að viðburðurinn verði haldinn. Skráning á netfang johanna@reykholar.is

 

18:00 Bjórmíla Galdurs brugghúss

Galdur brugghús verður með sinn rómaða bjór í bjórmílu þar sem hlaupin er ein míla eða 1,6 km með fjórum drykkjarstöðvum. 20 ára aldurstakmark, þátttökugjald 2500 krónur. Skráning á netfang johanna@reykholar.is.

 

20:00 Brekkusöngur, verðlaun og viðurkenningar í Hvanngarðabrekku.

Tilnefningar fyrir íbúa ársins berist á netfang johanna@reykholar.is

 

21:00 Bjartmar Guðlaugsson með tónleika á Báta- og Hlunnindasýningunni. 18 ára aldurstakmark. Þörungaverksmiðjan býður þátttakendum hátíðarinnar á viðburðinn og því er frítt inn.

 

21:00 Leikir og spil fyrir unglinga í íþróttahúsinu 13-17 ára.

 

23:00 Pöbbakvöld með Hirti Traustasyni og Bjarka Einarssyni á Báta- og Hlunnindasýningunni. 18 ára aldurstakmark. Frítt inn.