Dagskrá í Króksfjarðarnesi í lok Reykhóladaga
05.08.2026
Fréttir
Sunnudaginn 16. ágúst verður dagskrá í handverksmarkaði Össu í Króksfjarðarnesi, milli kl. 14 og 16. Það er lokaatriði Reykhóladaga.

Sultu- og hlaup keppni, prjónakeppni, allir hvattir til að taka þátt, hægt að skrá sig á staðnum.

Vöffluhlaðborð að hætti Össu og félagar úr Nikkólínu koma og taka nokkur lög.