Fara í efni

Covid-19 örvunarskammtur

17.04.2023
Fréttir

Covid-19 örvunarskammtur verður næst í boði þriðjudaginn 25. apríl á Heilsugæslustöðinni í Búðardal og miðvikudaginn 26. apríl á Heilsugæslustöðinni á Reykhólum.

Ekki er gert ráð fyrir að bjóða aftur upp á bólusetningu gegn Covid-19 fyrr en í haust samhliða bólusetningu gegn Inflúensu.

Athugið að fjórir mánuðir þurfa að vera liðnir frá síðustu bólusetningu.

Bóka þarf tíma í bólusetningu í síma 432 1450