Fara í efni

Byggingaframkvæmdir í fullum gangi á Reykhólum

28.06.2023
Fréttir

Um síðustu helgi var lokið við að steypa grunn undir nýtt fjögurra íbúða raðhús á Reykhólum. Byggingaverktaki er Landsbyggðarhús ehf. Leigufélagið Bríet verður eigandi hússins.

Um gatnagerð og jarðvinnu sér verktakafyrirtækið Verklok ehf., og lagnavinna er í höndum Sveins Borgars Jóhannessonar.

Sveinn Borgar sýður saman vatnsleiðslu.