Fara í efni

Breyttur opnunartími í Grettislaug til reynslu 1 dag í viku

07.11.2026
Fréttir

Kæru sundlaugargestir,

Þar sem óskir hafa komið fram frá íbúum Reykhóla um að opna sundlaugina fyrr á daginn, hefur mennta- og menningarmálanefnd ákveðið að koma á reynslutímabili með því að hafa opnunartíma fyrr einn dag í viku, í nóvember og desember 2026.

 

Reynslutímabilið stendur frá næstkomandi mánudegi, 9. nóvember, til 18. desember 2026. Á þessu tímabili verður sundlaugin og líkamsræktarstöðin opin á mánudögum frá kl. 15 til 19 (í stað kl. 17 til 21). Opnunartímar aðra daga haldast óbreyttir.

Reynslutímabilið er tengt nafnlausri gestatalningu og íbúakönnun um opnunartímann. Spurningalisti liggur frammi í sundlauginni.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur og þökkum þátttökuna í könnuninni!

Bestu kveðjur,

Starfsfólk sundlaugarinnar