Fara í efni

Breiðafjarðarferjan Baldur til sýnis í Stykkishólmi

14.11.2023
Fréttir
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur

Formleg móttaka ferjunnar Baldurs verður haldin í Stykkishólmi föstudaginn 17. nóvember klukkan 15:00 til 17:00. Þá gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til þiggja kaffi og kökur um borð í skipinu og skoða farþegarými skipsins.

Íbúar norðan megin Breiðafjarðar fá tækifæri til að skoða ferjuna í Brjánslæk, sunnudaginn 19. nóvember milli klukkan 17:00 og 18:00.

Um ferjuna Baldur

Saga Breiðafjarðarferjunnar Baldurs er löng en skip með þetta nafn hefur nýst til ferjusiglinga í nærri heila öld. Því þótti við hæfi, þegar Vegagerðin keypti ferjuna Röst frá Noregi, að hún fengi einnig nafnið Baldur.

Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og halda áfram siglingum, meðal annars í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum með uppbyggingu fiskeldis og aukinna umsvifa í ferðaþjónustu við Breiðafjörð. Einnig er ferjan mikilvæg fyrir íbúa Flateyjar þar sem skipið flytur nauðsynjar til eyjarinnar og er aðalferðamáti ferðafólks sem vill heimsækja Flatey og dvelja þar til skemmri eða lengri tíma.

Eldri ferjan, sem gegnt hafði ferjusiglingum undanfarin ár, var í eigu Sæferða og aðeins með eina aðalvél. Sú ferja var afhent nýjum eigendum í október.

Strax árið 2021 var farið að skoða hvort hægt væri að finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Gerð var krafa um að skipið væri búið tveimur aðalvélum og hefði haffærni fyrir C svæði en siglingaleiðin um Breiðafjörð flokkast sem C svæði. Afar fáar ferjur standa til boða sem geta siglt á C hafsvæði, eru með tvær vélar og geta jafnframt notast við núverandi hafnarmannvirki. Það var því heppilegt að ferjan Röst stóð til boða.

Vegagerðin keypti ferjuna Röst af Torghatten Nord í Noregi en hún sigldi í norður Noregi, á ferjuleiðinni, Svolvær-Skrova-Skutvik. Skrifað var undir kaupsamning 15. september 2023 en kaupverð ferjunnar var 3,5 milljónir Evra.

Stærsti kostur nýju ferjunnar er að hún er með tvö aðskilin framdrifskerfi þ.e. hún er útbúin tveimur aðalvélum og tveim skrúfum sem stóreykur öryggi farþega. Einnig er hún með öfluga veltiugga sem gerir siglinguna þægilegri og farþegarými er allt á sama dekki. Þá er hún 12 árum yngri en núverandi ferja og aðstaða fyrir farþega er mun þægilegri.

Nýi Baldur tekur 250 farþega og rúmar fimm stóra flutningabíla.

Til að ferjan gæti þjónað siglingum á Breiðafirði þurfi að ráðast í nokkrar breytingar. Skipið fór í slipp við komuna til landsins hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði sem átti lægsta boð í breytingarnar. Þær fólu m.a. í sér að koma fyrir nýjum þilfarskrana, landfestuvindum, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa geymslusvæði á þilfari og mála skipið að utan. Einnig þurfti að vinna að almennu viðhaldi véla og búnaðar.

Vegagerðin hefur gert samning við Sæferðir um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs.