Fara í efni

Brák íbúðafélag auglýsir íbúðir lausar til leigu á Reykhólum.

04.06.2025
Fréttir

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum í raðhúsi að Hellisbraut 70-76, Reykhólahreppi. Um er að ræða tvær 4ra herbergja íbúðir um 89m² og tvær 4ra herbergja íbúðir um 95m²

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Uppbygging þessara íbúða er í samræmi við húsnæðisáætlun Reykhólahrepps og er gott dæmi um blandað samstarfsverkefni þar sem húsnæðisstuðningur sveitarfélagsins og ríkisins er nýttur til uppbygginga íbúð utan höfuðborgarsvæðisins .

 

Umsókn um leigu

Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 15. Júní 2025

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.