Fara í efni

Borholan hjá Görðum biluð

06.07.2026
Fréttir

Athygli er vakin á að borholan hjá Görðum er biluð og lekur frá henni 100⁰ heitt vatn. Fólk er beðið að fara varlega og sérstaklega að hafa gætur á börnum í námunda við holuna.

Þörungaverksmiðjan brást skjótt við og tryggði vettvang eftir föngum. Viðgerð hefst á morgun og er fólk beðið að vera ekki á ferli í námunda við svæðið að óþörfu.