Ásta Sjöfn ráðin skólastjóri Reykhólaskóla
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Reykhólaskóla og mun hefja störf við skólann 1. ágúst næstkomandi.
Ásta er með kennaramenntun frá Kennaraháskóla Íslands, rekstrarfræðimenntun frá Samvinnuháskólanum á Bifröst og með réttindi sem framreiðslumeistari og býr þar að auki yfir áratuga reynslu af kennslu og stjórnun en hún hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra Reykhólahrepps síðastliðin fimm ár. Samfélag í Reykhólahrepps og Reykhólaskóli eru Ástu vel kunn enda búsett hér á Litlu Grund til áratuga.
Ásta starfaði á árum áður í tæpa tvo áratugi sem kennari við Reykhólaskóla og var skólastjóri skólans um fimm ára skeið þar sem hún stýrði skólanum við mjög góðan orðstýr. Í félagsmálum samfélagsins hefur Ásta verið virk og gegnt formennsku í stjórnum Kvenfélagsins Kötlu, Skógræktarfélagsins Bjarkar og Sambandi Breiðfirskra kvenna, setið í sveitarstjórn Reykhólahrepps og tekið virkan þátt í ýmsu öðru félagsstarfi. Hún hefur nú kosið að snúa aftur á vettvang menntamála og vinna að uppbyggingu skólastarfsins í þágu nemenda, foreldra og samfélagsins.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps ber fullt traust til Ástu Sjafnar við að leiða skólastarfið á komandi árum og býður hana hjartanlega velkomna til starfa.