Ársreikningur Reykhólahrepps 2025
Ársreikningur Reykhólahrepps 2025 er kominn hér á vefinn.
Ársreikningur Reykhólahrepps er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög; lög um ársreikninga nr. 3/2006 og reglugerð um bókhald; fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.156 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 830 millj. kr.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,550% en lögbundið hámark þess er 0,625%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall þess og í C flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark þess er 1,32% auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 21 millj. kr. og rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 3 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 824 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 653 millj. kr